<>
-

Kjúklingur með sinnepssósu og kornflakesraspi borið fram með sætkartöflugratíniKjúklingur með sinnepssósu og kornflakesraspi 6 stk kjúklingabringur 3 dl sýrður rjómi 2 msk sætt sinnep 1 msk dijon sinnep 3 dl kornflakes salt og svartur pipar Sætkartöflugratín 1 kg sætar kartöflur 1 stk meðalstór laukur 100 gr beikon 4 dl rjómi 100 gr piparostur rifinn 200 gr gratínostur salt Kjúklingur
Aðferð:
Takið skinnið af bringunum og setjið í smurt form kryddið með salti og nýmuldum sv.pipar. Blandið saman sýrðum rjóma og sinnepi og smyrjið yfir kjúklingin. Stráið því næst muldu kornflakes yfir svo það hylji vel kjúklinginn. Bakið við 185° í c.a. 30 mín eða þar til bringurnar eru gegnum steiktar.Berið fram með sætkartöflugratíni og fersku brokkolíSætkartöflugratínAðferð:
Skrælið og skerið sætarkartöflur í teninga og saxið laukinn setjið í eldfast mót. Steikið bacon á pönnu og hellið rjóma yfir bætið í rifnum piparosti blandið vel saman hellið rjómablöndunni yfir kartöflurnar og stráið loks gratínosti yfir.Bakið við 175° í 30 – 40 mínHöfundur: Árni Þór Arnórsson

