<
-
Sætt apríkósumauk með kanil
Mauk sem á vel við bragðmilda osta.
Sætt apríkósumauk 250 g ljós púðursykur 300 ml hvítvínsedik 1 appelsína, börkur og safi 4 cm biti af ferskri engiferrót, flysjaður og skorinn þunnt 2 kanilstangir 0,5 tsk negull, malaður 400 g mjúkar og þurrkaðar apríkósur, grófsaxaðar Aðferð:
Setjið sykur og edik í pott og hitið á vægum hita. Rífið börkinn utan af appelsínunni (bara það appelsínugula), skerið appelsínuna í tvennt og kreistið safann úr henni út í pottinn. Bætið kryddinu og apríkósunum saman við og látið malla í 30 mín. Setjið maukið heitt í krukkur. Geymist í kæli í tvær viku.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


