-
Epla og chili-hlaup
Á vel við með bragðmeiri ostum og bræddum ostum.
Epla og chili-hlaup 2 kg græn epli, skorin í grófa bita með hýðinu 800 ml eplasafi 700 g sykur 3 ersk rauð chili-aldin, fínsöxuð með fræjunum • safi úr 2 sítrónum
Aðferð:
Setjið eplin ásamt epla- og sítrónusafa í pott og látið malla í 20 mín. Sigtið maukið þannig að aðeins hreinn safi renni í gegnum sigtið.Hellið safanum aftur í pottinn og bætið sykri saman við ásamt chili-flögum. Hitið á vægum hita þar til sykurinn er uppleystur. Látið malla áfram í 15 mín.
ATH. ef hlaupið er ekki orðið nógu þykkt er það látið malla áfram í nokkrar mínútur. Setjið hlaupið heitt í krukkur. Geymist í kæli í þrjá mánuði.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
>


