<>
-
Kryddað mangó-chutney
Öðruvísi og framandi, á vel við flestar gerðir af ostum, t.d. gott í litlar ostasamlokur.
Kryddað mangó-chutney 3 stór mangó, flysjuð og skorin í litla bita 1 laukur, fínsaxaður 1 grænt chili-aldin, fræhreinsað og fínsaxað 2 hvítlauksrif, kramin 50 g engiferrót, rifin 2 tsk. sterkt karrí 250 ml hvítvínsedik 200 g sykur Aðferð:
Setjið allt í pott og látið malla á lágum hita í 30 mínútur. Setjið maukið heitt í krukkur. Geymist í kæli í tvær vikur.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


