<>
-
_262_202.jpg)
Sætkartöflukonfekt60-70 stykki
Konfekt 500 g sætkartöflumauk 200 g lint smjör 200 g flórsykur 50 g kókosmjöl 50 g möndluspænir (ristaður) 50 g special k kornflakes 1 tsk. kanill • hjúpsúkkulaði
• kókosmjöl
• special k kornflakes
Aðferð:
Bakið sætar kartöflur vel í ofni. Skerið í tvo hluta og kælið örlítið skafið maukið úr kartöflunum. Blandið smjörinu saman við gætið þó að því að kartöflumaukið sé ekki heitt. Blandið í flórsykri, ristuðum möndlum, kókosmjöli og special k saman við hrærið vel saman og kælið. Lagið kúlur og setjið á smjörpappír og frystið. Hjúpið loks kúlurnar með súkkulaði og veltið upp úr kornfleksi og kókosmjöli. Geymið í frysti.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


