<>
-
_262_202.jpg)
Múslikökur með grískri jógúrt110-120 stykki.
Múslíkökur 150 g smjör 200 g chrunchy hnetusmjör 150 g hrásykur 150 g grísk jógúrt 400 g granólamúslí 3 stk. egg 1 tsk. vanilla 200 g rúsínur saxaðar (má einnig nota súkkulaðirúsínur) 150 g haframjöl 1 tsk. matarsódi 0,25 tsk. salt (1/4) Aðferð:
Bræðið saman smjör, hnetusmjör og hrásykur. Bætið í jógúrt og hunangsmusli. Bætið í eggjum og vanillu. Bætið að lokum saman við súkkulaðirúsínum, haframjöli, matarsóda og salti.
Hrærið vel saman.
Setjið á plötu með smjörpappír og setjið deigið á með teskeið eða matskeið eftir hversu stórar kökurnar eiga að vera.
Bakið við 170°C 12-15 mínútur.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


