-

Jarðarberjatriffli sælkeransJarðarberjatriffli sælkerans
fyrir 6–8
Jarðarberjatriffli sælkerans 750 fersk jarðarber 2 msk. flórsykur 2 msk. brandí, Madeira, sérrí eða hlynsíróp 250 ml grísk jógúrt 350 ml rjómi 1 stk. marensbotn Aðferð:
Hreinsið grænu blöðin af berjunum og skolið þau vel. Skerið hvert ber í fernt og setjið þau í skál ásamt flórsykrinum og áfenginu eða hlynsírópinu. Setjið skálina í kæli. Hrærið grísku jógúrtina saman við þeyttan rjómann. Myljið marensbotninn saman við og bætið að lokum við ¾ af berjunum ásamt safanum. Hrærið lauslega saman. Setjið eftirréttinn í eina stóra skál eða skiptið honum í 6–8 glös. Skreytið með afganginum af berjunum. Berið strax fram.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


