-

Röndóttar smjörkökurUm 120 stk.
Smjörkökur 300 g smjör, mjúkt 175 g flórsykur 1 stk. egg 400 g hveiti 50 g kakó 50 g hveiti 1 stk. egg, aðskilið Aðferð:
Þeytið smjör og flórsykur saman í hrærivél þar til blandan verður létt og ljós. Bætið egginu út í, þeytið áfram og hrærið síðan hveitið saman við. Skiptið deiginu í tvennt og hrærið kakóið saman við annan helminginn.
Bætið um 50 g af hveiti við hinn helminginn og hnoðið áfram smástund.
Kælið í ísskáp í u.þ.b. 1 klst. Fletjið hvorn deighelming um sig út í ferhyrning, u.þ.b. 35 x 45 cm. Gott er að hafa plastfilmu undir deiginu þar sem það er nokkuð mjúkt. Gætið þess að ferhyrningarnir séu jafnstórir. Smyrjið léttþeyttri eggjahvítu á ljósara deigið og leggið brúna deigið ofan á. Snyrtið kantana og jafnið þá með hníf. Rúllið deiginu upp frá annarri langhliðinni í sívalning. Gott er að kæla sívalninginn í ísskáp í u.þ.b. 1 klst.
Hitið ofninn í 200°C. Skerið deigið í ½ cm þykkar sneiðar og leggið þær á smjörpappírsklæddar bökunarplötur. Penslið
kökurnar með léttþeyttri eggjarauðu og bakið ofarlega í ofninum í u.þ.b. 8 mínútur. Takið kökurnar strax af plötunni og látið þær kólna á bökunargrind.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>

