<>
-

Salat á sólríkum sumardegiHeil máltíð eða meðlæti með grillmat
Handa 8 sem meðlæti eða handa 4 sem aðalréttur.
Salat 6 stórir tómatar, skornir í bita 1 gúrka, skorin í litla bita 0,5 rauðlaukur, fínsaxaður 1 lítil dós maískorn 1 stórt mangó eða ¼ ferskur ananas skorinn í bita 6 brauðsneiðar, ristaðar 2 hvítlauksrif 1 krukka Dalafeta frá MS 0,5 Óðalsostur skorinn í teninga 2 msk. balsamedik • fersk basilíka, u.þ.b. 12 blöð, söxuð
• salt og pipar
Aðferð:
Skerið niður grænmetið og ávextina og blandið saman í stórri skál. Nuddið ristuðu brauðsneiðarnar með hvítlauksrifi. Skerið þær svo niður í teninga. Bætið brauðteningum, osti, kryddi og ediki út í salatið rétt áður en það er borið fram og bætið út í salatblöðum ef þið viljið.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


