<>
-

Kardimommu krydd-hrísgrjónHanda 4.
Krydd hrísgrjón 200 g basmati-hrísgrjón 2 msk. smjör frá MS 1 kanilstöng 6 heilir negulnaglar 8 stk. kardimommubelgir, létt kramdir eða annað indverskt krydd 0,5 tsk. anísfræ eða 1 tsk. fennelfræ 1 krukka Dalafeta frá MS að eigin vali • svolítið salt
• fersk kóríanderlauf
Aðferð:
Setjið hrísgrjónin í sigti og skolið með köldu vatni. Látið vatnið renna af þeim. Bræðið smjör í þykkbotna potti og ristið kryddið í smjörinu. Bætið grjónunum út í og þekið þau vel með smjörinu. Hellið 275 ml af köldu vatni yfir, setjið lokið þétt yfir pottinn, hitið að suðu við meðalhita og látið malla í 10 mín. Ef lokið er ekki þétt er hægt að þétta það með því að leggja álpappír utan um pottbrúnina. Takið pottinn af hitanum og látið grjónin standa áfram í lokuðum pottinum í 5 mínútur. Hrærið upp í grjónunum með gaffli. Setjið fetaostinn út í og klippið ferskt kóríander yfir. Berið strax fram.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


