-

Safarík kúreka-T-bone-steik með Béarnaise-smjöri og grilluðum kartöflubátumFyrir 4.
T-bone steik 4 stk. 350-400 g T-bone-steikur • ólífuolía
• salt og pipar
Aðferð:
Byrjið á því að búa til Béarnaise-smjörið (sjá uppskrift undir kryddsmjör). Hitið grillið vel. Nuddið ólífuolíu á kjöt-sneiðarnar og saltið örlítið. Grillið kjötið í 2 mín. á hvorri hlið við beinan háan hita. Lækkið hitann í grillinu og steikið áfram í 3-4 mín. á hvorri hlið en þá ætti kjötið að vera orðið „medium-rare“. Steikið áfram smástund ef þið viljið hafa það meira steikt. Takið svo kjötið af grillinu og látið það standa á heitum diski í 5-10 mín. til þess að jafna sig. Rétt áður en kjötið er borið fram er gott að skella því aftur á heitt grillið í 1-2 mín. Setjið steikurnar á diska og leggið vænan bita af kryddsmjöri ofan á hverja þeirra. Tilvalið er að bera steikurnar fram með kartöflubátum (undir salöt og meðlæti), fylltum kúrbít og eða fylltum papriku (sjá undir salöt og meðlæti).Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


