<>
-

MexíkóborgariMexíkóborgari • hamborgari
• sneið af steyptum Mexíkóosti frá MS
• sneið af steyptum jalapeno osti frá MS
• jalapenos úr krukku, sneiddir
• rauðlaukur, sneiddur
• salat að eigin vali
• svartar ólífur
• tómatur í sneiðum
• hamborgarabrauð
• sýrður rjómi frá MS
Aðferð:
Grillið borgarann eftir smekk. Leggið Mexíkó- og jalapeno-ostsneiðar á borgarann þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum og látið ostinn bráðna örlítið. Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins og smyrjið með sýrðum rjóma. Raðið svo borgaranum saman. Berið fram með tortillaflögum og sýrðum rjóma.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


