<>
-

Ítalskur borgariÍtalskur borgari • hamborgari
• ferskur mozzarella-ostur frá MS
• pepperóní
• smjörsteiktir sveppir
• pítsusósa
• steiktir laukhringir
• ciabatta-brauð eða hamborgarabrauð
Aðferð:
Steikið sveppina og laukhringina, sitt í hvoru lagi á pönnu. Grillið
borgarann eftir smekk. Þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum, dreifið þá mozzarella-sneiðum á borgarann og látið þær hitna og bráðna örlítið. Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins. Smyrjið brauðið með pítsusósunni. Raðið svo borgaranum saman.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


