<>
-

Sá klassíski - tvöfaldur borgariKlassískur borgar 2 hamborgarar • beikonsneiðar
• rauðlaukur í sneiðum
• BBQ-sósa
• gráðaostur frá MS
• grillostur, Gott í matinn frá MS
• kartöfluflögur eða kartöflustrá
• skyrkokteilsósa (sjá uppskrift undir sósur)
• hamborgarabrauð
Aðferð:
Steikið beikonið á pönnu og geymið. Stingið grillpinna í gegnum rauðlaukssneiðarnar, penslið með olíu og grillið á báðum hliðum, penslið laukinn með BBQ-sósu rétt undir lokin. Grillið borgarana eftir smekk, tvo á mann. Leggið ostinn ofan á borgarana þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum og látið hann bráðna örlítið. Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins, smyrjið ríflega af sósunni á brauðin. Raðið svo borgaranum saman. Berið fram með grilluðum kartöflubátumHöfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


