<>
-

Hamborgari - Grikkinn SorbaBorgari • tómatur í sneiðum
• rauðlaukur, fínt skorinn eða graslaukur
• ólífur, sneiddar
• kryddolía af fetaostinum og balsamedik, hrært saman
• klettasalat
• Dalafeta frá MS
• hamborgari
• hamborgarabrauð
Aðferð:
Sneiðið niður tómata, rauðlauk og ólífur. Veltið þessu upp úr kryddolíunni og balsamedikinu ásamt klettasalatinu. Steikið borgarann eftir smekk. Hitið brauðin á efri grind grillsins. Raðið borgaranum saman, vætið hann ríflega með ediksósunni.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


