<>
-
_262_202.jpg)
Grillbrauð fyllt með camembertGrillbrauð 2,5 dl súrmjólk 2 msk agavesíróp 1 tsk hjartarsalt 5 dl hveiti (5-6 dl.) 2 stk camembert Aðferð
Blanda saman súrmjólk og sýrópi. Bæta svo þurrefnunum út í og hnoða vel saman. Rúlla deigið í lengju og geyma í kæli í klukkustund, skipta því síðan í sirka 8 hluta.
Skerið ostinn eftir endilöngu í 4 bita hvern. Fletjið út degið og setjið einn bita af camemnbert á hvern bita pakkið inn. Grillið á útigrilli á öllum hliðum 2 mín á hvorri hlið berið fram með rifssultu eða blönduðum berjum.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


