<>
-
_262_202.jpg)
Grilluð hrossasteik með grænpiparhunangssósu og grilluðum fylltum kúrbítGrilluð hrossasteik 1200 gr hrossalund eða hrossafillet (1200-1500 gr) 1 dl olía 1 msk villijurtablanda Grænpiparhunangssósa 350 gr grísk jógúrt 1 dl ab mjólk 60 gr hunang 2 msk grænn pipar Grillaður fylltur kúrbítur 2 stk kúrbítur skorinn í 6-8 cm kubba og takið helming kjarnans burtu 5 msk fetaostur 2 msk brauðraspur Aðferð:Skerið hrossakjötið í sneiðar og veltið því upp úr olíuunni og villujurtablöndunni látið standa í minnst 30 mínútur. Lagið grænpiparsósuna. Myljið niður grænan pipar og hitið örítið í hunanginu í örbylgjuofni. Blandið saman við gríska jógúrt og ab-mjólk. Bragðbætið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Undirbúið kúrbítinn og fyllinguna. Hitið grillið vel og byrjið á að grilla kúrbítinn. Snúið niður tæmdu hliðinni grillið vel á þeirri hlið og snúið. Setjið á vægan hita og látið fyllinguna í með skeið látið hitna og bráðna í kúrbítinn. Grillið hrossakjötið við góðan hita og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Hrossakjötið skal grilla á sama hátt og nautakjöt.Berið fram með grænpiparsósunni, kúrbítnum og góðu salati.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


