<>
-
_262_202.jpg)
Grillað tofu og paprika með öðruvísi kartöflusalatiTofu 600 gr tofu skorið í ræmur (600-800 gr) 3 stk paprika 3 litir skornar í 6 ræmur hver 1 tsk hvítlaukur 0,5 dl olía • salt og nýmalaður svartur pipar
Kartöflusalat 600 gr kartöflur 100 gr radísur 1 dl sellerí 3 dl jógurt hrein 1 msk söxuð mynta 1 tsk saxaður hvítlaukur • salt og nýmalaður svartur pipar
Tofu aðferð:
Marinerið tofu og papriku í olíunni og hvítlauknum í sirka 20 mín grillið á vel heitu grilli. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Berið fram með öðrusvísi kartöflusalati og fersku salati.Sjóðið kartöflurnar, skrælið og kælið. Skerið radísurnar, selleríið og kartöflurnar í bita og setjið í skál. Blandið í jógúrti, myntu og hvítlauk kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Hrærið vel saman. Látið standa í minnst 1 tíma í kæli.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


