<>
-
_262_202.jpg)
Grilluð fyllt laxastykki með ferskum jurtum og gráðaostiInnihald 200 gr laxabitar (4 sinnum 200 gr) 75 gr rifinn gráðaostur 1 meðalstór laukur saxaður 1 dl saxaður graslaukur 1 dl söxuð steinselja 0,5 dl saxað rósmarín 2 msk ólífuolía • salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:Skeri vasa í laxabitana en gætið að skera hvergi í gegn. Blandið saman gráðosti, lauk, graslauk, steinselju og rosmaryn. Fyllið laxabitana með fyllingunni. Pennslið laxinn vel með olíu og gætið að pensla grillteinana vel með olíu. Setjið laxinn á heitt grillið látið grillast vel á hvori hlið. Berið fram með kartöflum og góðu salati.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


