<>
-

Köld jógúrtsósa með indversku ívafiFrábær sósa með krydduðum mat eða sem marínering á fisk og kjöt.
Köld jógúrtsósa 100 ml hrein jógúrt eða grísk jógúrt, Gott í matinn frá MS 100 ml kókosmjólk 2 tsk. karrí 3 msk. mangó-chutney • ögn af salti og sykri
Aðferð:
Blandið öllu saman. Látið sósuna standa í 30 mín. áður en hún er borin fram með mat. Gott að láta fiskinn eða kjötið marínerast í sósunni í 4-6 klst. í kæliskáp.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


