<>
-
Raita - köld jógúrtsósaÞessi ferska og milda jógúrtsósa fer einkar vel með krydduðum mat, s.s. kjúklingi, fiski og lambakjöti.fyrir 6
Raita sósa 1 gúrka, rifin á rifjárni 350 gr grísk jógúrt 6 msk fersk mynta, söxuð smátt 1 tsk kummin 0,5 tsk cayennepipar • salt og pipar
Setjið rifnu gúrkuna í hreinan klút og vindið til að pressa vökvann úr henni. Blandið síðan öllu hráefninu saman í skál. Saltið og piprið eftir smekk. Hyljið með plastfilmu og kælið í ísskáp.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


