-
_262_202.jpg)
Pizza með bökuðu grænmeti, fetaosti og gráðaostiPizzadeig 0,5 poki ger 0,5 tsk sykur 280 ml volg vatn (280-300 ml) 200 gr af brauðhveiti (próteinauðugu) 50 gr durum hveiti (má sleppa en bæta þá við 50 gr af brauðhveitinu) 1 tsk salt Pizzafylling 150 ml pizzasósa 2 msk gráðaostur, mulinn eða rifinn (1-2 msk) 1 meðalstór kartafla skorin í 1 cm bita 2 paprikur (gul og rauð) 1 kúrbítur skorinn í sneiðar 1 rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar 1 krukka fetaostur í olíu 10 basilikulauf 2 msk balsamedik • smá af olíunni af fetaostinum
• salt og svartur pipar
Hitið bakaraofninn í 200°C með blæstri og undirhita. Skerið niður sætu kartöfluna, paprikuna, kúrbítinn og rauðlaukinn. Hellið 1/4 af olíunni af fetaostinum yfir grænmetið og bakið í 20 mínútur. Hrærið einu sinni í grænmetinu á meðan það er að bakast. Fletjið pizzadeigið þunnt út, setjið pizzasósuna yfir. Setjið gráðaost og pizzaost yfir sósuna. Takið bakaða grænmetið uppúr olíunni og dreifið yfir pizzuna. Stráið fetaostinum yfir. Bakið pizzuna í 12-15 mínútur. Dreifið basilikunni og balsamedikinu yfir bökuðu pizzuna. Saltið og piprið eftir smekk. Berið strax fram.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


