<>
-

Pizza með beikoni, sveppum, rjómaosti og klettasalatiInnihald 100 g beikon í sneiðum 3 kúfaðar matskeiðar rautt pestó 100 g sveppir 150 g rjómaostur 150 g rifinn pizzaostur • pizzadeig
• klettasalat
Kaupið tilbúið pizzudeig eða gerið ykkar eigin og setjið á pappírsklædda bökunarplötu.
Hitið ofninn í 230°C. Steikið beikonið á þurri pönnu þar til það er stökkt. Látið renna af því á eldhúspappír. Skerið sveppina í sneiðar. Smyrjið pestói á pizzubotninn. Raðið sveppum og beikonsneiðum ofan á. Dreifið klípum af rjómaosti yfir og stráið pizzaosti yfir allt saman. Bakið pizzuna í miðjum ofni í 8-10 mínútur, eða þar til osturinn hefur tekið góðan lit. Setjið handfylli af klettasalati ofan á um leið og hún er tekin úr ofninum.Höfundur: Nanna Rögnvaldsdóttir


