-

Gulrótarkaka með kotasælu m/ananas og ferskjuskyrkremiKaka 175 g sykur 4 stk egg 1 dl súrmjólk 1 dl grænmetisolía 1 tsk vanilludropar 125 g hveiti 2 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 tsk kanel 250 g gulrætur - rifnar 1 dl valhnetur - hakkaðar (má sleppa 250 g kotasæla með ananas 1,5 dl kókosmjöl Krem 150 g rjómaostur 50 g smjör 250 g flórsykur 150 g skyr.is með ferskjum og hindberjum Kaka aðferð:
Þeytið egg og sykur vel saman. Bætið svo súrmjólk, olíu og vanillu saman við. Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kanil í skál og bætið svo saman við eggjablönduna og hrærið vel. Hellið því næst rifnum gulrótum, hökkuðum valhnetum, kotasælu m/ananas og kókos saman við deigið og hrærið vel. Setjið í hringlaga smelluform 22 cm í þvermál. Bakið í 55mínútur við 175°C. Kælið og smyrjið kreminu ofan á.
Krem aðferð:
Þeytið saman rjómaost, smjör og flórsykur þar til orðið létt og ljóst bætið skyrinu varlega í smyrjið yfir kökuna og kælið.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
<>


