<>
-

Sítrónu jógúrtkaka með muldum pistasíumKaka 150 g sykur 190 g hveiti 1 tsk. lyftiduft 0,5 tsk. salt 4 stk. egg 180 g maísmjöl (polentumjöl) 1 dl saxaðar pistasíur 2 stk. sítrónur bara börkur 0,5 sítróna bara safi 3 dl jógúrt 0,5 dl ólífuolía Rjómi 3 dl rjómi 200 g vanilluskyr Jógúrtkaka aðferð:
Þeytið saman egg og sykur, bætið í þurrefnunum, pistasíunum, sítrónuberkinum, sítrónusafanum, jógúrtinni og ólífuolíunni.
Setjið í smurt form sem er stráð með hveiti. Bakið við 175°C í u.þ.b. 35- 40 mín við blástur. Berið fram með vanilluskyrrjóma.
Rjómi aðferð:
Þeytið rjómann og bætið við skyrinu. Berið fram með kökunni.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


