-
_262_202.jpg)
Ostaköku BrownieBrownie 85 g smjör 115 g dökkt súkkulaði 130 g sykur 3 stk. egg 70 g hveiti 1 msk. kakó 0,25 tsk. salt (1/4) 100 g appelsínusúkkulaði 1 tsk. vanilla Rjómaostablanda 300 g rjómaostur 2 stk. egg 120 g flórsykur 1 tsk. vanilla Aðferð:
Hrærið saman rjómaostablönduna og geymið á kæli.
Bræðið saman smjör og dökkt súkkulaði við vægan hita. Þegar það er bráðið takið af hitanum og blandið saman við sykur og bætið svo við eggjum. Þeytið vel saman við, þar næst er blandað saman við hveiti, kakó og salti og að lokum er blandað saman við söxuðu appelsínusúkkulaði og vanillu. Setjið smjörpappír í botninn á formi u.þ.b. 25x30 cm og hellið súkkulaðifyllingunni í, bætið við rjómaostafyllingunni og blandið saman. Bakið við 175°C í 30-35 mínútur.
Einnig hægt að baka í litlum formum og hafa sem konfekt bakið þá við 175°C í 8-10 mínútur.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
<>


