<>
-

MömmukökurÚr uppskriftinni fá u.þ.b. 50 stykki.
Kökur 125 gr smjör 250 gr síróp 125 gr sykur 1 stk. egg 500 gr hveiti 1 tsk. engifer 1 tsk. matarsódi 1 tsk. kanill Krem 100 gr smjör, mjúkt 150 gr flórsykur 1 stk. eggjarauða 1 tsk. vanilludropar Aðferð:
Hitið smjör, síróp og sykur saman að suðu, kælið. Bætið eggi út í og blandið saman. Bætið þurrefnum út í og hrærið þar til úr verður sprungulaust deig. Látið deigið bíða á köldum stað yfir nótt. Hitið ofninn í 180°C. Fletjið deigið frekar þunnt út og stingið út kringlóttar kökur. Raðið á ofnplötur og bakið í u.þ.b. 6-8 mín. Kælið.Krem:
Hrærið allt vel saman. Leggið kökurnar saman, tvær og tvær, með smjörkreminu á milli. Geymið kökurnar á köldum stað eða í frysti og berið fram hvenær sem færi gefst.Höfundur:


