-
_262_202.jpg)
SúkkulaðiostakakaSúkkulaðiostakaka skreytt með súkkulaðitrjám
Botninn 200 g súkkulaðikex 80 g brætt smjör Fyllingin 100 ml rjómi 200 g 56% súkkulaði 400 g rjómaostur til matargerðar 50 g flórsykur 3 stk. egg 2 stk. eggjahvítur Súkkulaðihjúpur 125 ml rjómi frá 300 g hvítt súkkulaði, má einnig nota 56% súkkulaði 6 msk. léttristaðar kókosflögur Súkkulaði • Súkkulaði notað til skreytingar
Aðferð:
Myljið kexið fínt í matvinnsluvél. Bætið smjörinu við og blandið vel saman. Dreifið mylsnunni á botninn á springformi sem er 23 cm í þvermál og þrýstið henni niður með fingrunum þannig að hún þjappist vel. Kælið í ísskáp í u.þ.b. hálftíma.
Hitið ofninn í 150°C. Hitið rjómann að suðu, takið pottinn af hitanum, setjið súkkulaðið út í og hrærið vel þar til það er bráðið. Látið kólna í u.þ.b. 10 mínútur.
Setjið rjómaost og flórsykur í hrærivél og blandið vel saman. Látið vélina ganga og bætið heilu eggjunum út í, einu í senn. Hellið að lokum súkkulaðiblöndunni saman við og hrærið þar til allt hefur samlagast vel.
Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið þær rólega saman við deigið í tveimur áföngum. Hellið deiginu í mótið með kexmylsnunni og setjið það á grind neðarlega í ofninum. Bakið í 90 mínútur eða þar til kakan er orðin þétt. Látið hana kólna í opnum ofninum.
Kælið kökuna í ísskáp yfir nótt (eða í a.m.k. þrjá klukkutíma).
Búið til súkkulaðihjúpinn:
Hitið rjómann í potti, takið pottinn af hitanum, setjið súkkulaðið út í og hrærið þar til það er bráðið. Smyrjið kreminu jafnt yfir kökuna og skreytið með léttristuðum kókosflögum og trjám sem hægt er að búa til úr
Búið til súkkulaðijólatré:
Bræðið eina súkkulaðiplötu yfir vatnsbaði. Búið til kramarhús úr smjörpappír, klemmið fyrir stútinn og hellið brædda súkkulaðinu í kramarhúsið. Leggið smjörpappír á bökunarplötu.
Notið kramarhúsið eins og sprautupoka og formið skraut að eigin vild á smjörpappírinn. Látið súkkulaðið harðna á köldum stað áður en það er notað.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


