-
_262_202.jpg)
Veislubrauð með jógúrt, valhnetum og trönuberjumBrauð 50 g ferskt ger eða 11 g þurrger 2 msk. volgt vatn 1 tsk. sykur 300 g brauðhveiti 200 g rúgmjöl 400 ml hrein jógúrt 1 egg 1 msk. sykur 1 msk. kúmen 2 tsk. salt 75 g þurrkuð trönuber, rúsínur eða grófsaxaðar þurrkaðar apríkósur 100 g valhnetur eða pekanhnetur, léttristaðar og grófsaxaðar 2 tsk. Maldon-saltflögur
Aðferð:
Setjið gerið í litla skál með 2 msk. af volgu vatni og 1 tsk. af sykri og látið standa í um 10 mínútur. Hnoðið allt nema Maldon-saltflögurnar lauslega saman í hrærivél. Setjið deigið í skál ásamt u.þ.b. einni lófafylli af rúgmjöli sem sett er undir og yfir deigið. Breiðið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefa sig í u.þ.b. 1 klukkustund. Geymið það svo yfir nótt í kæliskáp en hægt er að geyma það með góðu móti í allt að 4 daga. Takið deigið úr kæliskápnum og mótið brauðhleif. Látið hann hefast í 1–1½ klst.
á hlýjum stað og breiðið plastfilmu yfir. Á meðan er ofninn hitaður í 250°C. Penslið brauðhleifinn með vatni og stráið saltflögum yfir hann áður en hann er settur í ofninn. Lækkið hitann í 200°C og bakið brauðið í 40-50 mínútur. Takið það úr ofninum og látið kólna á bökunargrind. Brauðið geymist vel innpakkað í viskustykki í allt að 3 daga.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<


