-
_262_202.jpg)
OstastangirUm 30 stk.
Ostastangir 200 g hveiti 0,5 tsk. salt 2 tsk. sterkt sinnep 150 g kalt smjör í litlum bitum 100 g rifinn mozzarella-ostur frá MS (eða pizzaostur frá MS) 75 g rifinn piparostur frá MS 2 eggjarauður 1 eggjahvíta, léttþeytt 50 g rifinn mozzarella-ostur frá MS (eða pizzaostur frá MS)
Aðferð:
Maldon-saltflögur eftir smekk Hitið ofninn í 200°C. Setjið smjörpappír á tvær bökunarplötur. Setjið hveiti í skál ásamt salti, sinnepi og kældu smjöri í bitum. Myljið smjörið saman við hveitið þar til það líkist brauðmylsnu. Blandið rifnum osti saman við ásamt eggjarauðum og hnoðið saman. Fletjið deigið út á hveitistráðri borðplötu þar til það er um ½ cm þykkt. Skerið það í 2 cm breiða renninga og skerið þá síðan í 10–15 cm lengjur. Raðið ostastöngunum á bökunarplöturnar og penslið yfirborðið með þeyttu eggjahvítunni. Stráið um 50 g af rifnum osti yfir ásamt saltflögunum. Bakið stangirnar í miðjum ofni þar til þær verða fallega gylltar á lit en það ætti að taka um 12–15 mínútur.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


