-
_262_202.jpg)
Ostaformkaka með ólífum og þurrkuðum tómötumUm 50 sneiðar
Ostaformkaka 30 g smjör, brætt, til að smyrja formin 250 g hveiti 150 g rifinn pizzaostur 50 g furuhnetur 250 ml matreiðslurjómi 1 egg, léttþeytt 60 g svartar steinlausar ólífur, grófsaxaðar 50 g þurrkaðir tómatar,grófsaxaðir 50 g rifinn pizzaostur til að setja ofan á kökuna
Hitið ofninn í 200°C. Smyrjið tvö jólakökumót að innan með bræddu smjöri. Klippið út smjörpappír sem passar í botninn á mótunum og leggið hann í bæði mótin. Blandið saman hveiti, rifna ostinum og furuhnetum. Hrærið matreiðslurjómann saman við ásamt eggi, ólífum og tómötum. Hrærið lauslega saman þar til ekki sést í þurrt hveiti. Skiptið deiginu jafnt í mótin og stráið 50 g af rifnum osti yfir. Bakið kökurnar í 45 mínútur eða þar til þær eru bakaðar í gegn. Látið þær kólna aðeins í forminu. Hækkið hitastigið á bakaraofninum í 250°C. Skerið kökurnar í 0,5 cm þykkar sneiðar. Raðið þeim á smjörpappírsklædda bökunarplötu, leggið aðra smjörpappírsörk yfir kökurnar og bakið þær áfram í 10–15 mínútur, eða þar til þær verða stökkar og gylltar á lit.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


