-
_262_202.jpg)
Litlar rjómakökurRjómakökur 3 plötur tilbúið smjördeig eða um 200 g 1 eggjarauða og 1 tsk. mjólk 3 msk. sykur 250 ml rjómi frá MS 3 msk. flórsykur 0,5 tsk. vanilludropar • ávextir t.d jarðarber, rifsber, ferskjur, bananar, kíví, mangó, brómber og flórsykur til skreytingar
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Skerið hverja deigplötu fyrst í tvennt eftir endilöngu en síðan í fernt þvert yfir til að fá átta bita úr hverri plötu. Raðið þeim á smjörpappírsklædda bökunarplötu. Penslið deigið með eggjarauðu, léttþeyttri með ögn af mjólk, og stráið sykrinum yfir. Bakið í 12–15 mínútur eða þar til kökurnar hafa lyft sér vel og eru byrjaðar að taka lit. Látið þær kólna á bökunargrind.
Þeytið rjómann með flórsykri og vanilludropum þar til hann er orðinn nokkuð stífur. Kljúfið hverja köku varlega í tvennt, setjið um eina matskeið af rjómanum á milli og leggið kökuna saman aftur. Setjið síðan aðeins minna af rjómanum ofan á kökurnar og skreytið með ávaxtabita eða beri. Sigtið að lokum ögn af flórsykri yfir kökurnar.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>

