>
-

Bollur með gráðaosti og hnetumÚtúr þessari uppskrift fást sirka 12-16 bollur.
Bollur 2 dl hveitiklíð 2 dl haframjöl 6 dl hveiti 1 tsk salt 4 tsk þurrger 100 gr valhnetukjarnar saxaðir 3 dl volgt vatn 2 msk olía 4 msk kotasæla 85 gr rifinn gráðaostur Aðferð:
Blandið öllum þurrefnunum saman í skál ásamt hnetunum. Blandið gerinu saman við volgt vatn og olíu, setjið saman við gráðaostinn og kotasæluna. Hrærið saman við þurrefnin og hnoðið vel saman. Athugið að það gæti þurft að bæta í hveiti. Látið deigið hefast á volgum stað í sirka 15 mínútur.Setjið deigið á borðið og hnoðið aftur. Lagið litlar bollur og látið hefast í sirka 10 mínútur penslið með mjólk og bakið við 200° í 15 - 20 mínútur fer eftir stærð.Höfundur: Árni Þór Arnórsson

