<>
-

Muffur með skinku, tómötum og ólífumMuffur 250 g hveiti 1 msk lyftiduft 1 tsk salt 40 g smjör 2,5 dl mjólk 2 msk ólífuolía 2 msk saxaðar ólífur 2 msk saxaðir sólþurrkaðir tómatar 100 g skinka 100 g rifinn ostur 100 g kotasæla með hvítlauk Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C, blandið saman í höndunum hveiti, lyftidufti, salti og smjöri. Velgið saman mjólk og ólífuolíu og blandið saman við mjölblönduna. Bætið við ólífum, sólþurrkuðum tómötum, rifinni skinku, kotasælunni og ¾ af ostinum.Setjið í muffinsform og stráið restinni af ostinum yfir.
Bakið við 180°C í 20-25 mínAth að hægt er að baka minni muffur og nota sem smáréttBerið fram volgt með góðu salatiHöfundur: Árni Þór Arnórsson

