<>
-

Spelt bollur með rifnum ab osti og ólífum5 dl spelt
3 tsk vínsteinslyftiduft
½-1 tsk sjávarsalt
1,5-2 dl ab mjólk
1,5-2 dl sjóðandi heitt vatn
1,5 dl rifinn ab ostur
0,5 dl saxaðar ólífur
Spelt, vínsteinslyftidufti og sjávarsalti blandað saman. Bætið í söxuðum ólífum og rifnum ab osti. Hellið ab mjólk og heitu vatni saman við hrærið saman en gætið að því að hræra ekki of mikið. Lagið litlar bollur og bakið við 190°. Bökunartími fer eftir stærð brauðanna.
Höfundur: AÞA


