<>
-

Heit perubaka með rjómaostamarengs, pekanhnetum og hvítu súkkulaðiFyrir 6 persónur
Perubaka 3 stk meðalstórar perur 100 g pekanhnetur 50 g hvítt súkkulaði 2 stk egg 100 g flórsykur 150 g rjómaostur Aðferð:Flysjið og kjarnhreinsið perurnar. Skerið í bita og setjið í eldfast form. Saxið súkkulaðið og pekanhneturnar gróft og stráið yfir perurnar. Skiljið eggin og þeytið eggjahvíturnar með flórsykrinum þannig að þær verði stífar. Setjið í skál og hrærið saman rjómaostinum og eggjarauðunum. Blandið loks varlega þeyttum eggjahvítunum saman við rjómaostinn. Setjið blönduna yfir perurnar og bakið í 25-30 mínútur við 170° C berið fram heitt.Athugið einnig er hægt að nota epli í þessa uppskrift eða jafnvel jarðarber. Berið fram með þeyttum rjóma.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


