<>
-

Expresso súkkulaðitertaBotn innihald 125 g smjör 100 g flórsykur 250 g hveiti 2 eggjarauður 2 msk kalt vatn Fylling innihald 6 blöð matarlím 4 dl rjómi 1 dl nýmjólk 600 g suðusúkkulaði 100 g smjör 1,5 dl sterkt expressokaffi Botn aðferð:Blandið saman smjöri, flórsykri og hveiti. Bætið þar næst við eggjarauðum og vatni. Hrærið vel saman. Þrýstið deiginu í springform u.þ.b. 28 cm og setjið vel upp á kantinn. Kælið í u.þ.b. 1 tíma. Setjið smjörpappírsörk í botninn og hrísgrjón yfir, bakið botninn við 180°C í 20 mínútur. Fjarlægið smjörpappírinn og hrísgrjónin og bakið í 5 mínútur í viðbót.Fylling aðferð:Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Sjóðið saman mjólk og rjóma og takið af hellunni. Bætið í söxuðu súkkulaðinu og hrærið vel saman, bætið þar næst í smjörinu og hrærið vel saman. Kreistið vatnið vel af matarlíminu og leysið það upp í expressokaffinu. Blandið saman við súkkulaðifyllinguna og að lokum hellið fyllingunni i tertubotninn og kælið vel. Berið fram með þeyttum rjóma eða góðum ísHöfundur: Árni Þór Arnórsson


