<>
-

Ostakaka með hvítu súkkulaðiBotn 150 gr hafrakex 40 gr kókosmjöl 2 msk púðursykur 70 gr smjör Fylling 400 gr hreinn rjómaostur 175 gr flórsykur 1 tsk vanilludropar 350 gr hvítt súkkulaði (brætt) 2 egg 1 eggjarauða Botn aðferð:Myljið kexið og blandið með kókosmjöli og púðursykri. Bræðið smjörið og blandið saman. Setjið í botninn á 24 cm smelluformi. Gott er að setja smjörpappír undir. KæliðFylling aðferð:Hrærið saman rjómaost, flórsykur, vanilludropa, blandið varlega í bræddu súkkulaðinu og loks eggjum og rauðu í tveim skömmtun blandið vel á milli.Hellið fyllingunni í formið og bakið við 175° í sirka 50-60 mín.Kælið kökuna áður en formið er losað gott er að baka kökuna daginn áðurSkreytið með ferskum berjum og hvítu súkkulaði og berið fram vanillu eða berjaskyriHöfundur: Árni Þór Arnórsson

