-

Ostakaka með hvítu súkkulaði og bláberjumBotn innihald: 200 g súkkulaðihafrakex 100 g daim eða daimkúlur 70 g smjör Kaka innihald: 300 g hvítt súkkulaði 400 g rjómaostur 2,5 dl þeyttur rjómi 250 g bláber eða einhver önnur góð ber Botn aðferð:
Bræðið smjörið, maukið saman kex og daim og bætið bræddu smjörinu saman við. Þrýstið í botninn á springformi. KæliðKaka aðferð:
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og þeytið rjómann. Hrærið rjómaostinn vel í hrærivél, bætið þeytta rjómanum saman við blandið vel saman. Blandið loks saman við brædda hvíta súkkulaðið.Setjið í formið og stráið berjunum undir og ofan á. Kælið í minnst fjóra tíma.Einnig er hægt að laga þessa í eldföstu mótiHöfundur: Árni Þór Arnórsson


