<>
-
_262_202.jpg)
Ostagljáð haustgrænmetiOstagljáð haustgrænmeti 200 gr brokkolí 200 gr blómkál 300 gr gulrætur 300 gr rófur 300 gr kartöflur 150 gr sellerí 6 stk tómatar 2 stk hvítlauksgeirar 2 msk saxað ferkst basilikum 2 dósir rjómaostur með kryddblöndu 1 glas dalafeta í kryddolíu • Salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:Skerið grænmetið í bita og steikið á pönnum, harða grænmetið fyrst (kartöflur, rófur og gulrætur) í 2 msk af olíunni af fetaostinum. Setjið í eldfastform. Bætið við olíu og steikið næst restina af grænmetinu. Blandið öllu grænmetinu saman ásamt söxuðum hvítlauk og basilikum. Kryddið með salti og pipar. Skerið tómatana í fjóra hluta og setjið efst. Setjið rjómaostinn og fetaostinn yfir.
Bakið í ofni við 170°C í 25-30 mínútur. Frábært meðlæti með lambakjöti.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson

