-
_262_202.jpg)
KartöflugratínKartöflugratín
- Pomme Dauphinoise
fyrir 6-8
Kartöflugratín 500 ml matreiðslurjómi 1 tsk. salt 2 tsk. svartur pipar, malaður 900 g kartöflur, skornar eins þunnt og hægt er 200 g rifinn gratínostur • smjör til að smyrja mótin/mótið að innan
• stórt hvítlauksrif, kramið
• ögn af múskati og cayenne-pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið eldfast mót að innan með smjöri. Takið meðalstóran pott og setjið í hann allt sem fer í réttinn nema ostinn. Hrærið varlega í pottinum svo að kartöflurnar festist ekki við botninn. Hleypið suðunni upp og látið malla áfram í fimm mínútur. Bætið um helmingnum af ostinum út í og hrærið. Hellið úr pottinum í eldfasta mótið, jafnið kartöflunum í það og gætið þess að þær standi ekki upp úr sósunni. Stráið afgangnum af ostinum yfir og bakið í 45–60 mínútur eða þar til osturinn er orðinn fallegur á litinn. Gott er að stinga gaffli í kartöflurnar til að athuga hvort þær séu orðnar mjúkar. Ef til eru jafnmörg lítil eldföst mót og fjöldi þeirra sem borða má skipta kartöflunum í þau þannig að hver og einn fá eitt mót á diskinn sinn.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>

