<
-

Tómat- og kryddjurtasósa með sýrðum rjómaHoll og góð sósa með sýrðum rjóma sem hentar vel með grilluðum mat. Hentar einnig sem ídýfa.
Tómat- og kryddjurtasósa 1 dós sýrður rjómi 1 tómatur 2 msk. steinselja, smátt söxuð 2 msk. mynta, smátt söxuð 2 msk. kóríander, smátt saxað 0,5 msk. hunang 1 msk. sítrónusafi • nýmalaður svartur pipar
• salt
Skerið tómatinn í helminga og fræhreinsið hann. Skerið tómatkjötið í litla bita og setjið í skál ásamt öllu því sem fara á í sósuna. Blandið vel saman. Gott sem ídýfa eða með grillmat.
Höfundur: Úlfar Finnbjörnsson


