-

Fylltir ostarSniðugar hugmyndir að fylltum ostum til að nota við ýmis tækifæri.
Gullostur fylltur með rommlegnum rúsínum, þurrkuðum apríkósum og sultuðum fíkjum. Síðan er sætu apríkósumauki smurt yfir ostinn.
Stóri Dímon fylltur með fersku basil,
grilluðu eggaldini og ofn- eða sól-þurrkuðum tómötum. Pinnum með ferskum tómötum, basil og steyptum ítölskum osti er síðan stungið ofan í ostinn.
Dala-brie með gráðaostafyllingu,
þ.e. 2 msk. af stöppuðum gráðaosti ásamt 2 msk. af mascarpone-osti.
Skreytið ostinn með pekanhnetum
og hellið síðan hunangi yfir.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>


