>
-

Bakaðar nachosflögurFyrir 4-6 manns.
Bakaðar nachosflögur 1 poki nachos u.þ.b. 450 g 500 g salsasósa 250 g rjómaostur 200 g rifinn ostur Meðlæti • Sýrður rjómi
• Salsasósa
• Ostasósa
Aðferð:
Ofninn er hitaður í 180° C og 1/3 af snakkinu sett í eldfast mót. Síðan er 1/3 af salsasósunni dreift yfir, ofan á salsasósuna er klípu af rjómaostinum dreift hér og þar. Síðan er 1/4 af rifna ostinum stráð yfir. Endurtakið tvisvar sinnum og endið á að dreifa restinni af rifna ostinum yfir.
Hitið í ofni í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til osturinn er fallega bráðinn. Berið fram heitt með sýrðum rjóma, salsasósu og ostasósu.
Fyrir sterkari útgáfu má einnig strá á milli laga söxuðum jalapeno.Afbragðsgott og til að gera matarmeira er að bæta einnig við elduðum kjúkling, papriku og lauk
Höfundur: Árni Þór Arnórsson

