-

Grænmetislasagne með fjórum ostum og brauðbollumSósa 1 msk. ólífuolía 1 laukur u.þ.b. 100g saxaður 4 msk. tómatmauk 1 dós niðursoðnir tómatar 1 tsk. oregano 1 tsk. rósmarín 3 dl vatn 200 g sveppir í bitum 200 g blómkál í bitum 200 g spergilkál í bitum 200 g kúrbítur í bitum 200 g niðursoðnar kjúklingabaunir 1 pakki grænt lasagne 500 g kotasæla 125 g gráðaostur 1 poki rifinn gratínostur 2 pokar mozzarella, litlar kúlur skornar í tvennt 1 askja konfekttómatar u.þ.b 250 g Brauðbollur 2,5 bolli spelt 1 bolli heilhveiti 5 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 2,5 dl hörfræ 3 dl sólblómafræ 2 dl graskersfræ 2 dl rifinn ab ostur 1 dl ab mjólk 1 lítil dós kotasæla 1 msk. hlynsíróp Lasagne : aðferð:
Byrjið á að laga sósuna. Svitið lauk og hvítlauk saman og bætið í tómatmauki ásamt oregano og rósmarin. Bætið í niðursoðnum tómötum og vatni látið sjóða við vægan hita í 10 – 15 mín.
Steikið grænmetið á pönnu í olíu og blandið út í sósuna ásamt kjúklingabaunum. Látið sjóða í 2-3 mínútur.
Svo er öllu raðað saman. Kotasæla, rifinn gratínostur, lasagneplötur, grænmetisgums, gráðostur, lasagneplötur, kotasæla, rifnn gratínostur, grænmetisgums, lasagneplötur, kotasæla, gatínostur grænmetisgums og að lokum setjið konfekttómata og mozzarella á toppinn bakið við 180° í 30 – 40 mín
Brauðbollur : aðferð:
Forhitið ofninn í 180°
Blandið öllu saman og mótið litlar bollur setjið í heitan ofn og bakið í 15-20 mín eftir stærð
Höfundur:
<>


