-

Buffaló marengsístertaÍsterta innihald 1 stk tilbúinn marensbotn (myljið niður) 5 stk egg 4 msk sykur 5 dl rjómi 200 g vanilluskyr 2 kassar buffalóbitar Aðferð:
Léttþeytið rjómann, skiljið í sundur eggjahvítu og rauður. Þeytið saman rauður og 2 msk af sykrinum. Blandið saman við léttþeyttan rjómann og vanilluskyrinu. Saxið buffalóbitana og blandið saman við ásamt ½ marengsinum.
Hreinsið hrærivélaskálina vel og þeytið því næst saman eggjahvíturnar og 2 msk af sykrinum. Hrærið eggjahvítunni varlega saman við rjómablönduna. Setjið restina af marengsbrotunum í botninn á forminu. Hellið blöndunni í formið og frystiðHöfundur: Árni Þór Arnórsson
<>


