<>
-
_262_202.jpg)
Íspinnar með grískri jógúrt og hindberjasírópiSíróp 180 gr frosin hindber 2 tsk sykur 1 tsk límónusafi Jógúrtin 350 gr grísk jógúrt 2 tsk sykur Aðferð:
Þíðið hindberin og látið í pott með sykri og límónusafa, sjóðið varlega í 2 mínútur. Pressið þau svo gegnum sigti, setjið maukið aftur í pottinn og sjóðið aðeins niður til þess að fá þykkara síróp. Látið kólna.Hrærið jógúrtina og sykurinn saman. Hellið sírópinu í íspinnamót, 4 eða fleiri, eftir því hvað þau eru stór. Látið sírópið renna aðeins niður með hliðunum að innanverðu, það gerir skemmtilegt mynstur í ísinn. Fyllið mótin með jógúrtinni og komið pinnunum fyrir. Frystið yfir nótt.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


