-

Jógúrt tómatrjómasúpaFyrir 4.
Súpa 4 msk laukur smátt skorinn 1 tsk hvítlaukur saxaður 0,5 tsk chilliduft 1 msk smjör 2 msk tómatpúrré 2 dósir niðursoðnir tómatar 5 dl kjúklingasoð (vatn og kraftur) 3 dl matreiðslurjómi 3 dl hrein jógúrt 1 msk maisenamjöl 2 msk ferskt basil saxað • Salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Svitið laukinn, hvítlaukinn og chilliduftið í smjöri, bætið í tómatpúrré og hrærið vel saman í u.þ.b. 2 mínútur. Bætið í niðursoðnum tómötum, lárviðarlaufi og kjúklingakrafti. Látið sjóða við vægan hita í u.þb. 10 mínútur, bætið í matreiðslurjómanum. Bragðbætið með kjúklingakrafti, salti og nýmuldum svörtum pipar. Blandið saman 2 dl af jógúrtinu með maísenamjölinu og setjið saman við súpuna gætið að því að súpan má ekki bullsjóða eftir að jógúrtið er komið í. Stráið basilikum yfir súpuna rétt áður en hún er borinn fram og setjið restina af jógúrtinu yfir súpuna.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
<>


