-
_262_202.jpg)
Humarsúpa - JólFyrir 6-8.
Humarsúpa 1 kg humarhalar í skel 1 laukur 3 hvítlauksrif 1 msk. smjör 1 msk. ólífuolía 1 tsk. karrí 0,5 tsk. paprikuduft 1 stk. stjörnuanís (1-2 stk. eða má sleppa) 1 msk. tómatþykkni (pureé) 1,5 lítri vatn1 1,5 msk. grænmetiskraftur 1 msk. olía til steikingar 100 ml (eða góð skvetta) af koníaki eða brandíi (má sleppa) 250 ml matreiðslurjómi 150 150 ml rjómi • cayenne-pipar á hnífsoddi
• maizena-mjöl til þykkingar ef vill
• salt og pipar
Aðferð:
Skelflettið humarhalana og fjarlægið görnina. Saxið laukinn og hvítlaukinn. Hitið smjör og olíu í potti og brúnið skelina vel. Bætið þá lauknum og hvítlauknum út í og svo karríi, paprikudufti, cayenne-pipar, anís og tómatþykkni. Brúnið áfram í 1–3 mínútur. Hellið þá vatninu í pottinn og látið suðuna koma upp. Látið sjóða niður við lágan hita í opnum potti þar til u.þ.b. helmingur er eftir. Bætið þá grænmetiskraftinum út í. Sigtið soðið og geymið.
Takið annan pott og hitið vel. Setjið olíu í hann og snöggsteikið humarhalana. Hellið koníakinu yfir og því næst humarsoðinu. Hitið að suðu og setjið matreiðslurjómann út í. Bragðbætið með salti og pipar. Einnig getur þurft að bæta við smákrafti. Þykkið með maizena-mjöli ef vill.
Léttþeytið rjómann, ausið súpunni á diska og setjið eina skeið af rjómanum á miðjuna á hverjum diski. Skreytið t.d. með timían eða malið svartan pipar yfir.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
<>

