>
-
_262_202.jpg)
Græn baunasúpa með beikonbitumSúpa 1 msk olía 1 laukur, fínt saxaður 600 gr grænar baunir, frosnar 0,5 lítri kraftmikið kjúklingasoð 200 ml matreiðslurjómi 0,5 ds sýrður rjómi eða 1/4 ds grísk jógúrt 6 sneiðar beikon, steikt og skorið í bita • múskat
• salt og svartur pipar
Aðferð:
Setjið olíuna í pott og látið laukinn krauma 6-8 mínútur, þar til hann er glær. Hellið soðinu yfir hann ásamt matreiðslurjómanum, bætið frosnu baununum og múskati útí og hitið að suðu. Látið baunirnar sjóða í 8–9 mínútur. Takið þá pottinn af hitanum og maukið baunirnar með töfrasprota þar til súpan verður mjúk og jöfn (eða setjið hana í matvinnsluvél). Hitið aftur upp að suðu. Saltið og piprið eftir smekk. Skreytið súpuna með sýrðum rjóma og beikonbitum. Berið strax fram.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir

